Hvernig á að taka myndir af sólmyrkvanum með snjallsíma?

Svona á að nota snjallsíma til að fanga sólmyrkvann 12. ágúst 2026 á Íslandi.

Almyrkvinn 12. ágúst 2026 á Íslandi verður einn allra mest ljósmyndaði viðburður í sögu þjóðarinnar. Á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesskaga, Snæfellsnesi og Vestfjörðum verður fjöldi ljósmyndara samankomnir með stórar aðdráttarlinsur og sjónauka, auk tug þúsunda ferðalanga, til að fanga myrkvann á mynd. Flestir munu þó láta sér nægja að taka myndir með snjallsímunum sínum.

Eitt ætti fólk að forðast í lengstu lög. „Að horfa á almyrkvann á skjánum á símanum þínum eru mestu mistök sem þú gerir,“ sagði Sævar Helgi Bragason hjá solmyrkvi2026.is. „Leggðu símann frá þér og njóttu sýningarinnar með berum augum. Augað greinir fegurðina miklu betur en nokkur snjallsími eða myndavél.“

Þar með er ekki sagt að þú ættir ekki að taka myndir af myrkvanum með snjallsímanum þínum. Þegar öllu er á botnin hvolft eru bestu snjallsímamyndirnar af sólmyrkvum þó ekki nærmyndir af sólinni, heldur myndir og vídeó sem fanga upplifun fólks og nærumhverfinu.

Deildarmyrkvi á sólu í október 2023 á snjallsímamynd með Solar Snap. Mynd: Jamie Carter

Ekki búast við glæsilegum nærmyndum af kórónu sólar

Á símaskjánum og -myndum eru sól og tungl pínulítil sem kemur mörgum á óvart. Ljósmyndarar sem taka nærmyndir af almyrkvaðri sól nota langar aðdráttarlinsur eða sjónauka sem stækka myndina verulega. Snjallsímamyndavélar geta aldrei keppt við það.

Vert er að hafa í huga að margir ljósmyndarar upplifa oft ekki almyrkvann á sama hátt og þau sem aðeins horfa og njóta. Sumir ljósmyndarar gefa sér ekki einu sinni tíma til að horfa á almyrkvann með eigin augum. Þeir sem gefa sér tíma til að njóta hafa sjálfvirknivætt myndatökuna, skipulagt allt fyrirfram og æft sig.

Í stað þess að rembast við að taka stórfenglegar myndir af myrkvanum með símanum þínum, hafðu þá frekar í huga nærumhverfið og landslagið, eldfjöllin og hraunin, strandlengjuna, jökulinn og jarðhitasvæðin – allan þann glæsilega forgrunn sem Ísland hefur upp á að bjóða. Myndir af fólki að horfa á myrkvann af svartri strönd eða við hverasvæði verður miklu dýrmætari minjagripur en pínulítil og fremur óskýr mynd af kórónu sólar.

Sólarsía er nauðsynleg – fyrir og eftir almyrkva

Mikilvægt er að gæta fyllsta öryggis þegar sólmyrkvar eru ljósmyndaðir. Þegar deildarmyrkvinn stendur yfir, fyrir og eftir almyrkva, á aldrei að beina myndavél að sólinni án sólarsíu sé ætlunin að taka nærmyndir. Myndirnar verða ekki aðeins daprar, heldur getur sólarljósið skemmt myndflöguna.

Ein einfaldasta leiðin er að nota örugg sólmyrkvagleraugu eins og þau sem fást hjá sólmyrkvagleraugu.is. Gleraugunum er þá haldið fyrir linsu snjallsímans. Gæta verður þess að þau detti ekki af svo gott er að festa þau með einhverjum hætti. Beindu símanum að sólinni án þess að horfa sjálf(ur) á hana með eigin augum. Þessi aðferð er örugg til að fanga deildarmyrkvann með snjallsímum. Við mælum líka með því að þú æfir þig fyrir stóra daginn einhvern sólríkan dag.

Sama gildir um Solar Snap, sólarsíu sem þú festir á snjallsímann þinn og app sem þú notar til að stilla myndatökuna. Appið er mjög gagnlegt til að ná nærmyndum af deildarmyrkvanum og mælum við heilshugar með því.

Solar Snap sólarsía fyrir framan deildarmyrkvaða sól. Solar Snap fæst hjá solmyrkvagleraugu.is. Mynd: Jamie Carter

Við almyrkva breytist allt – sía af

Öryggisreglurnar breytast alveg þegar almyrkvinn hefst. Þegar síðasti sólargeislinn hverfur og kóróna sólar birtist, er öruggt að horfa beint á almyrkvann án sólmyrkvagleraugna. Þú verður líka að taka sólarsíuna af myndavélinni ef þú ætlar að reyna að fanga kórónuna á mynd.

Við ítrekum: Ekki stara á myrkvann á skjánum á símanum þínum! Almyrkvinn á Íslandi er örstuttur, lengstur aðeins rétt rúmar tvær mínútur á Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Fylgstu með myrkvanum og njóttu hans með eigin augum.

Æfðu þig, taktu mynd og leggðu símann frá þér

Bestu snjallsímamyndirnar af almyrkvum eru ekki nærmyndir heldur myndir með fallegum forgrunni sem fanga stemmninguna. Á Íslandi verður sólmyrkvinn í um 24-25 gráðu hæð yfir sjóndeildarhring í vest-suðvestri sem er nógu lágt til að fanga landslag og myrkvann samtímis.

Gott er að æfa sig við sólsetur með því að beina símanum (án sólarsíu!) að sólinni, smella á skjáinn til að fókusa á eitthvað fjarlægt, eins og fjall, og halda fókusnum inni til að læsa hann. Minnkaðu svo birtu sólar á skjánum áður en myndin er tekin. Ef síminn býður upp að myndatöku í RAW eða ProRAW er best að nota það til að lagfæra myndina eftir á.

Okkar besta ráðlegging er hins vegar þessi: Taktu mynd skömmu eftir að almyrkvinn hefst og settu svo símann í vasann. Njóttu myrkvans með eigin augum.

Önnur leið er að taka upp vídeó af almyrkvanum og fólkinu í kringum þig. Þá er best að setja símann á þrífót, ýta á upptöku og gleyma símanum svo. Jafnvel þótt myndgæðin séu slök heyrast viðbrögð fólks vel og þau geta verið ein skemmtilegasta minningin af almyrkvanum löngu seinna.

Svo hvernig á að taka myndir sólmyrkvanum með snjallsíma?

  1. Haltu eða festu sólmyrkvagleraugu, eða sólarsíu eins og SolarSnap, á myndavélina á snjallsímanum þínum.

  2. Festu símann á þrífót (ef þú átt hann til).

  3. Ræstu Solar Snap appið eða myndavéla-appið.

  4. Slökktu á flash-inu.

  5. Beindu símanum að sólinni og þysjaðu inn (ef þú átt ekki þrífót þarftu að halda símanum eins stöðugum og mögulegt er). Gættu þess að horfa ekki í sólina með eigin augum.

  6. Fókusaðu, læstu fókusnum, minnkaðu birtu sólarinnar á skjánum og smelltu svo af.

Til að fanga almyrkvann fylgirðu sama ferli en fjarlægir sólarsíuna eða sólmyrkvagleraugun. Enn betri aðferð er að taka upp vídeó.

Solar Snap appið býður upp á mismunandi stillingar. Mynd: Jamie Carter

Fangaðu stemmninguna, ekki aðeins sólina

Almyrkvi á sólu yfir Íslandi er og verður einstök, ógleymanleg upplifun – sama hvernig viðrar. Þú getur fangað myrkvann á margan annan hátt en með nærmyndum af sólinni. Veittu umhverfinu athygli. Taktu myndir af vinum og ástvinum með sólmyrkvagleraugun, sérkennilegum skuggum og furðulegri birtu og rökkrinu sem færist yfir. Fangaðu viðbrögð fólks á vídeó.

Ljósmyndarar munu ná glæsilegum nærmyndum af kórónu sólar. Það sem mestu máli skiptir er hins vegar upplifunin sjálf. Fangaðu á mynd þína eigin upplifun af því að standa í eina skiptið á ævinni undir alskugga tunglsins í einstöku landslagi Ísland. Að mörgum árum liðnum verða þær myndir dýrmætastar til að rifja upp hvernig það var að upplifa almyrkva á sólu í heimahögunum.

Viltu styðja framtakið?

Með kaupum á sólmyrkvagleraugum og öðrum varningi frá sólmyrkvagleraugu.is styður þú við vitundarvakningu og fræðslu um sólmyrkvann fyrir börn og fullorðna, Íslendinga og útlendinga.

Frekari fróðleikur