
Að taka myndir af almyrkvum kallar á sólarsíur, undirbúning og skipulagningu
Stundum er sagt að ef þú upplifir almyrkva á sólu í fyrsta sinn, ekki taka myndir. Það kemur á óvart hversu stuttur almyrkvinn er. Jafnvel lengstu almyrkvar virka ótrúlega skammir. Almyrkvar eru svo mikilfenglegir og alltumlykjandi að þú vilt fá sem mest úr upplifuninni. Til þess eru augun best.
Þú vilt samt örugglega taka myndir. Þegar öllu er á botninn hvolft, er fátt ánægjulegra en að eiga eigin myndir af mögnuðustu sýningu náttúrunnar sem þú upplifir aldrei aftur frá Íslandi.
En hvernig er best að taka myndir af sólmyrkvanum? Við þeirri spurningu er ekkert eitt rétt svar. Það fer eftir búnaði, hvar þú verður, hvort þú ætlir að taka nærmyndir eða víðmyndir, eða bæði, og hvort þú ætlir að nota sjónauka eða ekki. Gott er að sjálfvirknivæða myndatökuna eins og frekast er unnt.
Að ljósmynda sólmyrkva er nefnilega ekki alveg eins einfalt og að taka myndir af norðurljósum. Ljósmyndari, hvort sem er áhuga- eða atvinnuljósmyndari, þarf að læra eitt og annað nýtt.
Eitt liggur þó alveg ljóst fyrir...
Nauðsynlegt er að nota sólarsíu á meðan tunglið færist fyrir sólina og deildarmyrkvinn stendur yfir. Tæpum 10 sekúndum fyrir almyrkva er óhætt að taka síuna af linsunni til að fanga demantshringinn og perlur Bailys. Sólarsían er siðan sett upp aftur að loknum almyrkva.
Gæta þarf fyllstu varúðar þegar sólin er skoðuð og ljósmynduð. Öruggar sólarsíur eru alltaf settar á fremri enda myndavélalinsu eða ljósop sjónauka. Sólarsíur draga úr birtu sólar um 99,999% og hleypa sömuleiðis ekki í gegn útfjólubláu eða innrauðu ljósi.
Sólarsían þarf að vera kyrfilega föst á linsunni eða sjónaukanum svo hún fjúki ekki burt í vindi. Límdu hana því eða festu með einhverjum hætti. Það á sérstaklega við um sjónauka sem horft er í gegnum. Vandaðari síum fylgja öryggisfestingar.
Sían þarf samt að vera áföst þannig að auðvelt sé að taka hana hratt af fáeinum sekúndum fyrir almyrkva og setja upp aftur eftir almyrkva. Það er eina leiðin til þess að þú náir að fanga perlur Bailys, demantshringinn, sólstróka og að sjálfsögðu djásnið sjálft, kórónu sólar.
Sólarsíurnar eru því aðeins notaðar á meðan deildarmyrkvanum stendur. Ef sían er ekki fjarlægð á meðan almyrkvinn stendur yfir sést ekkert á myndunum.

Sólarsíur eru misgóðar og misskarpar svo mikilvægt er að vanda valið. Til að hjálpa ljósmyndurum og sólskoðurum bjóðum við eingöngu upp á hágæða sólarsíur sem við höfum góða reynslu af persónulega. Þær eru frá þýska fyrirtækinu Baader Planetarium og bandaríska fyrirtækinu DayStar Filters. Þessar sólarsíur er fljótlegt að taka af fyrir almyrkva og setja aftur upp eftir hann.
Við mælum ekki með því að nota staflaða ND-filtera. Þeir deyfa birtu sólar oft ekki nógu mikið og skrúfast gjarnan á linsuna svo tímafrekt getur verið að taka þær af. Þegar almyrkvinn er að hefjast viltu hafa hraðar hendur. Þess vegna mælum við alls ekki með síum sem þú skrúfar á linsuna.
DayStar síurnar eru úr svörtum fjölliðum og í gegnum hana er sólin appelsínugul, þótt það sé ekki raunverulegur og réttur litur sólar. Þær koma í papparamma sem sáraeinfalt er að setja saman á örfáum mínútum. Helsti kosturinn við DayStar síurnar er hve fljótlegt er að taka þær af sjónauka eða myndavélalinsu en gæta þarf þess að þær fjúki ekki af.

Í gegnum síurnar frá Baader (AstroSolar Safety Film) er sólin hvít eða örlítið bláhvít, sem er náttúrulegur litur hennar.
Þótt þær séu örþunnar arkir eru síurnar frá Baader þekktar fyrir að vera sérstaklega skarpar og fullkomlega öruggar. Baader sólarsíurnar eru án efa þær bestu sem við höfum prófað og mælum við heilshugar með þeim. Þær koma ýmist tilbúnar í hringlaga ramma eða í A5- og A4-örkum sem notandi setur sjálfur saman.
Filmurnar þurfa ekki að vera rennisléttar því brot eða krumpur hafa engin áhrif á myndgæðin. Skjóttu alltaf í RAW ef þú vilt geta breytt litnum á sólinni eftir á ef þú notar Baader-filmuna.

Handleika þarf sólarsíur varlega svo ekki komi lítil göt á filmurnar. Kannaðu alltaf ástand sólarsíunnar áður en þú setur hana á linsuna eða sjónaukann. Notaðu límband eða felt til að tryggja að hún sé kyrfilega föst.
Mæla þarf þvermálið á linsunni til að finna rétta stærð af sólarsíu fyrir linsuna eða sjónaukann þinn. Ekki hika við að hafa samband ef þú ert í vafa.
Sjá nánar: Sólarsíur á solmyrkvagleraugu.is

Sólarsíur eru sérstaklega hugsaðar til að skoða og ljósmynda sólina. Þær eru 100% öruggar og vottaðar til sólskoðun og þess vegna mælum við eingöngu með þeim.
Eftirfarandi listi sýnir hluti sem draga úr birtu sólar en eru ekki öruggir því þeir draga hvorki nægilega mikið úr sólarljósinu né skaðlegum innrauðum og útfjólubláum geislum sólar. Svo ekki nota:
Langbesti kosturinn til að ljósmynda sólmyrkva er myndavél með útskiptanlegum linsum, eins og DSLR eða speglalausar vélar frá Nikon, Canon, Sony, Fuji o.s.frv.
DSLR og speglalausar vélar henta líka best til að fanga norðurljós og stunda stjörnuljósmyndun. Vélar með hreyfanlegum skjá eru sérlega heppilegar í sólmyrkvamyndatökur sé sól hátt á lofti, eins og í almyrkvanum við Miðjarðarhaf árið 2027.
Vélarnar sem við mælum með hér undir taka því mið af því, að vera bæði frábærar í stjörnuljósmyndun og sólmyrkva- og norðurljósamyndatökur. Auk þess höfum við góða reynslu af þeim.
Listinn er vitaskuld ekki tæmandi. Margar aðrar vélar geta verið og eru alveg jafn góðar. Í sannleika sagt mælum við með því að nota tvær myndavélar: Einni til að taka víðmynd af umhverfinu sem timelapse og annarri til að taka nærmynd af myrkvanum með aðdráttarlinsu eða sjónauka.
Hvaða linsur eru hentugastar veltur á hvort þú ætlir að taka víðmyndir eða nærmyndir, eða bæði.
Margir freistast til að taka aðeins nærmyndir en víðmyndir eru ekki síður áhugaverðar og einfaldari í framkvæmd. Víðmyndir gera þér kleift að fanga umhverfið sem breytist umtalsvert við almyrkva. Myrkvinn sjálfur verður þó auðvitað agnarsmár á himninum en það er ekki aðalatriðið í þessu tilviki. Góðar víðlinsur frá 14-35mm henta vel til að fanga umhverfið og stemninguna.
Sólmyrkvamyndataka krefst ekki hraðrar linsu (lágt f/#) því dagur breytist ekki nótt við almyrkva heldur rökkvar. Linsur sem eru f/3,5 til f/5,6 henta vel í víðmyndatöku en hraðari linsur, til dæmis f/2,8, gera þér kleift að stytta lýsingartímann sem er hentugt fyrir time-lapse tökur.
Í almyrkvanum 12. ágúst 2026 er sól tiltölulega lágt á lofti yfir Íslandi (~25°) svo mögulegt er að taka glæsilegar víðmyndir með fallegum forgrunni.
Á gagnvirka kortinu okkar geturðu smellt á hvaða punkt á Íslandi sem er. Þá birtist ör sem vísar í þá átt sem myrkvinn er sem hjálpar þér vonandi að finna fallegan forgrunn. Þá birtast einnig allar tímasetningar nákvæmlega.
Sjónauki eða aðdráttarlinsa eru kjörin til að fanga almyrkvann í meiri smáatriðum, sérstaklega kórónu sólar, sólstróka, demantshringinn og perlur Bailys.
Litlir linsusjónaukar með 60mm til 110mm ljósopi og allt að 1000mm brennivídd eru fullkomnir til þess, sem og myndavélalinsur með á bilinu 400mm til 800mm brennivídd.
Hafðu í huga að því lengri sem brennivíddin er, því stærri er myndin og því hraðar færist sólin út úr sjónsviðinu. Þar koma til bjargar rafdrifin sjónaukastæði sem fylgja eftir snúningi Jarðar.

Notaðu alltaf manual stillingar á myndavélinni. Slökktu á noise reduction og, ef þú ert með DSLR vél, stilltu á Mirror Lock Up (gildir ekki um speglalausar vélar, eðli máls samkvæmt).
Engin einn lýsingartími er bestur fyrir almyrkva því enginn lýsingartími getur fangað allt sem augað nemur. Lágt ISO og stuttur lýsingartími fleytir þér langt. Stuttur lýsingartími fangar demantshringinn og sólstróka en lengri lýsingartími afhjúpar meira af kórónunni. Ef ský eru á himni næst aðeins innri kórónan en ekki ytri.
Listinn hér undir sýnir ISO og lýsingartíma sem þarf til að fanga fyrirbærin miðað við linsu eða sjónauka sem er f/4, f/5,6 eða f/6 , án sólarsíu og rafdrifins sjónaukastæðis.
Fyrir f/8 eru tölurnar margfaldaðar með tveimur en með fjórum fyrir f/11.
Til að fanga meira af kórónunni er best að halda f/# og ISO tölunni óbreyttri en lengja lýsingartímann.

Timelapse myndataka er frábær til að fanga myrkvann frá upphafi til enda, bæði á víðmynd og nærmynd. Þá þarftu að nota tímastilli (intervalometer) og gæta þess að nóg pláss sé á minniskortinu.
Margar myndavélar eru með innbyggðan tímastilli en stundum þarf að kaupa hann sérstaklega. Utanáliggjandi tímastillir er betri kostur því auðveldara er að ræsa og slökkva á honum á án þess að snerta myndavélina sjálfa.
Í wide-angle timelapse er ekki þörf á sólarsíu á linsunni. Bæði myndavélin og víðlinsan verða í góðu lagi án hennar. Nærmyndir með aðdráttarlinsu ættu hins vegar alltaf að vera með sólarsíu nema við almyrkva.
Í wide-angle timelapse er gott að nota ISO 400 og/eða hraðari linsu til að halda lýsingartímanum undir einni sekúndu.
Ein mynd á sekúndu í 10 mínútur skilar 600 römmum eða 20 sekúndna vídeói. Það dugir til þess að sýna vel alskugga tunglsins nálgast og færast yfir. Þessi myndataka er sérstaklega áhugaverð og skemmtileg. Byrjaðu myndatökuna að minnsta kosti 5-10 mínútum fyrir almyrkva og haltu jafn lengi áfram eftir almyrkva.
Erfiðara er að taka timelapse-nærmyndir af sólmyrkvanum. Þau krefjast bæði undirbúnings og skipulagningar.
Tryggja þarf að sólarsían sé tekin af á réttum tíma, að sólin færist ekki úr rammanum á meðan almyrkva stendur og hún sett aftur á eftir almyrkva. Þá getur þurft að lengja og stytta lýsingartíma á meðan myndir eru teknar.
Fyrir timelapse nærmyndatöku er besta ráðið að setja myndavélina á rafdrifið sjónaukastæði sem fylgir eftir snúningi Jarðar og heldur sólinni alltaf í rammanum.
Ef rafdrifið stæði er ekki notað er mikilvægt að nota mjög stöðugan þrífót á góðum haus. Taktu svo myndir sjálfkrafa á 2 til 3 sekúndna fresti. Tvær sekúndur eiga að duga til að breyta lýsingartímanum handvirkt.
Nýttu þá austur-vestur færslu himinsins með því að setja sólina vísvitandi ekki á miðja mynd heldur láttu hana reika yfir rammann.
Æfðu þig á tunglinu og/eða sólinni fyrir myrkvann með þeirri aðdráttarlinsu eða sjónauka sem þú ætlar að nota.
Ljósmyndun sólmyrkva er alls ekki eins og hver önnur ljósmyndun. Hvort sem þú ert áhugaljósmyndari eða atvinnuljósmyndari er nauðsynlegt að æfa sig og undirbúa sig vel fyrir stóra daginn.
Þegar almyrkvinn skellur á gerist allt ótrúlega hratt, svo hratt að ef þú ert ekki undirbúin(n) missirðu af myrkvanum á meðan þú fiktar í myndavélunum. Þú færð ekki annað tækifæri til að fanga perlur Bailys, demantshringinn og kórónu sólar fyrr en 170 árum eftir myrkvann 12. ágúst 2026.
Sólríkur blíðviðrisdagur er kjörinn til að læra á sjónaukann og myndavélina, stillingar og notkun á sólarsíum. Og að finna sólina á himninum!
Já, að finna sólina í gegnum sólarsíu á myndavél eða sjónauka getur verið merkilega snúið og tímafrekt. Ein aðferð er sú að hreyfa sjónaukann og myndavélina til uns skuggi þeirra á Jörðinni er minnstur. Síðan horfirðu í gegnum gluggann eða sjónaukann og hreyfir lítillega til þar til sólin birtist.