
Dagurinn verður ógleymanlegur og einstakur – en aðeins ef þú undirbýrð þig vel og vandlega. Hér eru tíu mistök til að forðast.
Þann 12. ágúst 2026 hylur tunglið sólina að fullu frá Íslandi séð í fyrsta sinn síðan 1954. Sárafáir Íslendingar hafa því upplifað almyrkva og eins og við á um svo marga stjarnfræðilega viðburði er umtalsverða upplýsingaóreiðu, rangfærslur og misskilning að finna á samfélagsmiðlum og vefsíðum um myrkvann. Ekki bæta úr skák slæmar ráðleggingar óreyndra og þeirra sem eru ókunnir staðháttum. Dagurinn verður ógleymanlegur – en aðeins ef þú undirbýrð þig vel og vandlega. Hér er listi yfir tíu mistök til að forðast til fá sem mest út úr þessum einstaka, sögulega og magnaða viðburði á Íslandi.
Þegar fram í sækir muntu rekast á og heyra af stöðum sagðir eru góðir því þar sé 90% myrkvi eða 90% almyrkvi. Sannleikurinn er sá að 99% deildarmyrkvi er ekki „næstum því“ almyrkvi. Eingöngu innan almyrkvaslóðarinnar sérðu kórónu sólar og mikilfenglegustu sýninguna. Vertu því alveg viss um að vera innan almyrkvans. Skoðaðu kortin okkar til að finna góða útsýnisstaði.

Næst mörkum eða jaðri almyrkvans er almyrkvinn ákaflega stuttur. Aðeins tvö þéttbýlissvæði eru þar: Hvanneyri og Mosfellsdalur, hvort um sig innan við 1 km fyrir utan almyrkvaslóðina. Vestasta húsið á Hvanneyri er þannig um 600 metrum utan við almyrkvann. Svo, þið sem búið á Hvanneyri og í Mosfellsdal, sem og þið sem dveljið við Meðalfellsvatn og Kjós, skellið ykkur örlítið vestar.

Almyrkvinn er alltaf lengstur næst miðju alskuggans. Í tilviki almyrkvans 12. ágúst er miðjan þó á hafi úti. Margir almyrkvaunnendur munu því fara eins vestarlega og mögulegt er á Vestfirði, Snæfellsnes eða Reykjanesskaga. Almyrkvinn er lengstur á Íslandi við Látrabjarg, 2m 13s en 2m 9s á Snæfellsnesi og 1m 50s á Reykjanesskaga.
Ekki þó leggja alla áherslu á að vera þar sem myrkvinn er lengstur. Fókusaðu á að vera innan almyrkvaslóðarinnar. Skýjafar skiptir miklu meira máli en að kreista út auka þrjátíu sekúndur. Veldu gott veður og aðgengileika umfram lengd almyrkvans.

Í ágúst getur verið sólskin, þoka, rigning og nánast allt þar á milli innan sömu klukkustundarinnar. Fylgstu með skýjahuluspánni, til dæmis á vef Iceland at Night, og vertu þar sem spáin er best samdægurs.

Umferðin á Vesturlandi verður gríðarmikil allan daginn 12. ágúst, sér í lagi eftir myrkvann. Hér og þar eru flöskuhálsar, svo sem í gegnum Borgarnes og jafnvel Reykjavík líka. Leggðu því snemma af stað og gefðu þér góðan tíma í að aka milli staða. Á vef Vegagerðarinnar eru upplýsingar um vegalokanir og umferðarstýringu vegna myrkvans. Hafðu líka í huga mikinn fjölda fólks á bensínstöðvum og vegasjoppum.

Almyrkvinn er hápunkturinn en sólmyrkvinn allur stendur yfir í um tvær klukkustundir, frá um það bil 16:47 til 18:47 en almyrkvi er í kringum kl. 17.47. Komdu þér fyrir á útsýnisstað talsvert áður en sólmyrkvinn hefst – þegar tunglið byrjar að bíta sólina – og vertu alveg þangað til myrkvinn klárast. Að vera á síðustu stundu eða yfirgefa svæðið um leið og myrkva lýkur dregur úr upplifuninni. Þú lendir hvort eð í umferðarteppu.

Ein til tvær mínútur eru ekki langur tími til að upplifa glæsilegustu sýningar náttúrunnar. Ef þú ætlar að ljósmynda myrkvann er besta ráðið að sjálfvirknivæða myndatökuna sem mest og æfa sig fyrir fram. Snjallsímanotendur ættu alls, alls ekki að horfa á myrkvann á símaskjánum, heldur stilla frekar á upptöku og leggja símann frá sér. Njóttu myrkvans með eigin augum, líkama og sál frekar en á litlum og lélegum skjá.

Nauðsynlegt er að nota sólmyrkvagleraugu á meðan deildarmyrkvanum stendur til að koma í veg fyrir augnskaða. Um leið og almyrkvinn hefst verðurðu að taka gleraugun af og horfa með berum augum. Ef þú gerir það ekki sérðu ekki kórónu sólar með eigin augum. Settu gleraugun svo upp aftur eftir almyrkva.

Sólmyrkvinn verður í um 25 gráðu hæð á himni í vest-suðvestri. Allt í kringum þig er þó margt annað að sjá. Ef heiðskírt er sérðu Júpíter hægra megin við myrkvaða sól og Merkúríus, mun daufari, skammt frá. Vinstra megin sólar sérðu Venus ægibjarta. Alls staðar í kringum okkur er 360 gráðu sólsetursbirta við sjóndeildarhringinn. Haf og land taka á sig drungalega málmkennda eða silfurlitaða birtu. Birtan breytist á tilþrifamikinn hátt, lofthiti fellur og fuglar þagna.

Reyndu að standast freistinguna á að pakka saman og tygja þig strax eftir að demantshringurinn birtist og birtir á ný. Dveldu áfram á svæðinu til þess að leyfa umferðinni að minnka. Mikilvægara er þó að hugleiða aðeins upplifunina. Almyrkvi á sólu er svo sjaldgæfur viðburður að það að njóta hans eftir á er hluti af töfrunum. Fagnaðu og hugsaðu til þess, að sama sýning sést ekki frá Íslandi fyrr en 170 árum síðar.
Jamie Carter er fremsti sólmyrkvablaðamaður heims. Hann skrifar á WhenIsTheNextEclipse.com og skrifar um myrkva, stjörnuskoðunarferðamennsku og stjörnufræði fyrir Forbes.com, Space.com, New Scientist, Live Science, Sky & Telescope og BBC Sky At Night. Í ágúst 2026 verður hann fyrirlesari um borð í Sylvia Earle sem siglir frá Íslandi í leiðangri á vegum New Scientist.