
Sama hvernig viðrar munu allir Íslendingar upplifa einstaka, ógleymanlega stund
Hvað gerist ef það verður skýjað í sólmyrkvanum 12. ágúst? Sennilega er þetta algengasta spurning sem við fáum. Svarið við henni er ekki einfalt. Það fer eftir því hversu skýjað er. Skýjaður almyrkvi er nefnilega miklu meiri upplifun en 99,9% heiðskír deildarmyrkvi.
Gott er að hafa hugfast að veðrið þarf ekki að vera fullkomið, þótt við vonumst auðvitað til þess að bjart verði um land allt.
Háskýjaslæða hefur lítil sem engin áhrif á sýnileika almyrkvans. Þú sérð og upplifir allt sem myrkvinn býður upp á.
Raunar gæti sólmyrkvinn orðið ögn áhugaverðari ef háský eru á lofti því þá birtist rosabaugur um sólina á meðan deildarmyrkvinn stendur yfir. Þá sést enn betur þegar tunglskugginn nálgast okkur úr norðri og fjarlægist í suðri.
Þetta sést ágætlega á myndinni hér undir sem tekin var um 30 mínútum fyrir almyrkvann 8. apríl 2024 í Burlington í Vermont í Bandaríkjunum.

Þá er líka í lagi ef léttskýjað er en þá er nóg af götum til að allt sjáist. Hálfskýjað veður gæti líka sloppið til en þá verða sumir heppnari en aðrir undir götum á ögurstundu, líkt og sjá má í myndskeiðinu hér undir frá almyrkvanum 21. ágúst 2017 í Nebraska í Bandaríkjunum
Á myndinni hér fyrir neðan sést hálfskýjaður almyrkvi 8. mars 2016 í Indónesíu. Næg göt eru í skýjunum til að almyrkvinn sjáist mjög vel. Myndin sýnir líka vel hversu dimmt verður.

Verði alskýjað og þungbúið, jafnvel rigning, einhvers staðar á almyrkvaslóðinni upplifum við samt eitthvað einstakt, furðulegt og fallegt: Að myrkur skellur á í mínútu til tvær eftir því hvar á almyrkvaslóðinni þú ert. Stysta nótt ævinnar.
Verði veður eins óhagstætt og það getur orðið (rigning) missum við alveg af deildarmyrkvanum og sjónarspilinu sem almyrkvinn er, sem þá yrði dapurlegasta niðurstaðan. Aðdragandinn yrði ekki nándar nærri eins áhugaverður en hápunkturinn aftur á móti einstök og óvenjuleg upplifun.
Við tækjum nánast ekki eftir neinum sérstökum breytingum fyrr en um 30 sekúndum fyrir almyrkva. Þá skellur á hraðasta sólsetur ævinnar, furðulegasta „nótt“ lífsins, og hraðasta sólarupprás sem þú munt nokkru sinni upplifa. Ef bjart er í fjarska sæirðu sólsetursbirtu og roða í skýjunum.
Í Rochester í New York ríki varð alskýjaðður almyrkvi 8. apríl 2024. „Þótt það hafi verið mikil vonbrigði að skýin kæmu í veg fyrir að við sæjum kórónu sólar, þá var upplifunin samt sem áður mögnuð. Myrkrið varð eitthvað svo miklu dimmara en ég átti von á, næstum eins og það hafi verið miðnætti.“ sagði Daniel Schneiderman hjá vísindasafninu í Rochester í New York ríki í Bandaríkjunum í spjalli við solmyrkvi2026.is.
„En þökk sé skýjunum sáum við skugga tunglsins nálgast og umvefja okkur. Ég man að dóttir mín, þá tveggja ára, endurtók í sífellu hversu ótrúlega dimmt var| úti. Þótt skýjað væri varð fólk algerlega uppnumið yfir upplifuninni. Ég heyrði ótal sögur af fólki sem féllst í faðma, fuglar og dýr gengu til hvílu líkt og nótt væri skollin á. Við upplifðum bæði þessa kyrrð og það rafmagnaða andrúmsloft sem verður við almyrkva á sólu,“ sagði Daniel.
Ef veðurútlitið er óhagstætt einhvers staðar á almyrkvaslóðinni verður fólk hreyfanlegt. Umferðin liggur þangað sem best viðrar og mestar líkur eru á að almyrkvinn sjáist lengst. Engin leið er að vita hvar það verður fyrr en að morgni 12. ágúst þegar veðurútlitið liggur ljóst fyrir. Umferðin verður gríðarmikil svo mikilvægt er að fólk gefi sér góðan tíma í ferðalög, sér í lagi eftir á. Mun lengri tíma mun taka að aka heim á leið eftir á.
Sævar Helgi Bragason hefur upplifað fjóra almyrkva á sólu til þessa. Hann er vísindamiðlari, rithöfundur, dagskrárgerðarmaður og eigandi og ritstjóri solmyrkvi2026.is og icelandatnight.is