
Hagnýtar upplýsingar um almyrkvann, safnsvæði, vegalokanir, umferðarstýringu og bílastæði
Almyrkvinn 12. ágúst 2026 varir lengst í 2m 13s við Látrabjarg í Vesturbyggð á Vestfjörðum. Er það lengsti mögulegi almyrkvi á Íslandi. Ef vel viðrar eru því miklar líkur á að Vesturbyggð verði vinsælasti áfangastaður almyrkvaunnenda sem leggja leið sína á Vestfirði. Þetta er fyrsti almyrkvinn á sólu á Vestfjörðum síðan 30. mars 1131.
Árneshreppur og Kaldrananeshreppur eru einu sveitarfélögin utan alskuggans á Vestfjörðum. Almyrkvi sést því ekki frá Drangsnesi, Hólmavík, Djúpavík og Gjögri. Fólk sem þar býr er eindregið hvatt til þess að ferðast inn í almyrkvaslóðina.
Alskuggi tunglsins er yfir Vestfjörðum í 3 mínútur og 27 sekúndur. Hann snertir fyrst Straumnes á Hornströndum kl. 17:43:28 en yfirgefur Vestfjarðarkjálkann við Sigluneshlíðar við Barðaströnd kl. 17:46:54.
Fjöldi íbúa innan almyrkvaslóðar: ~7300
Fjöldi skemmtiferðaskipa sem koma í land á Vestfjörðum vegna myrkvans: Upplýsingar væntanlegar
Ferðalangar sem hyggjast fara til Vestfjarðar eru eindregið hvattir til að kynna sér vel upplýsingar frá Vestfjarðarstofu.

Staður | Lengd almyrkva | Deildarmyrkvi hefst | Almyrkvi hefst | Almyrkvi í hámarki | Almyrkva lýkur | Deildarmyrkva lýkur |
|---|---|---|---|---|---|---|
Aðalvík | 1m 19s | 16:42:47 | 17:43:39 | 17:44:19 | 17:44:58 | 18:43:22 |
Bolafjall | 1m 39s | 16:43:00 | 17:43:47 | 17:44:36 | 17:45:26 | 18:43:43 |
Bolungarvík | 1m 36s | 16:43:04 | 17:43:52 | 17:44:40 | 17:45:28 | 18:43:46 |
Ísafjörður | 1m 30s | 16:43:17 | 17:44:07 | 17:44:52 | 17:45:38 | 18:43:57 |
Súðavík | 1m 25s | 16:43:25 | 17:44:16 | 17:44:58 | 17:45:41 | 18:44:02 |
Suðureyri | 1m 46s | 16:43:00 | 17:43:46 | 17:44:39 | 17:45:32 | 18:43:48 |
Flateyri | 1m 46s | 16:43:09 | 17:43:55 | 17:44:48 | 17:45:41 | 18:43:57 |
Þingeyri | 1m 48s | 16:43:27 | 17:44:13 | 17:45:07 | 17:46:01 | 18:44:16 |
Bíldudalur | 1m 53s | 16:43:45 | 17:44:31 | 17:45:28 | 17:46:24 | 18:44:38 |
Tálknafjörður | 1m 59s | 16:43:45 | 17:44:31 | 17:45:31 | 17:46:30 | 18:44:43 |
Patreksfjörður | 2m 4s | 16:43:43 | 17:44:29 | 17:45:31 | 17:46:33 | 18:44:46 |
2m 13s | 16:43:39 | 17:44:27 | 17:45:34 | 17:46:40 | 18:44:54 |
Smelltu á gagnvirka kortið hér undir. Ör birtist sem vísar í þá átt sem myrkvinn verður á himni. Gluggi birtist sem sýnir allar tímasetningar nákvæmar upp á sekúndu, lengd almyrkva og sólarhæð. Þá sýnir kortið skuggavarp af landslagi kl. 17:45 miðvikudaginn 12. ágúst. Safnsvæði eru merkt inn á kortið sem en upplýsingar um umferðarstýringar koma þegar nær dregur.
Þann 12. ágúst 2026 hefst umferðarstýring kl. 12:00 og stendur fram yfir sólmyrkvann (19:00). Gera má ráð fyrir að hámarkshraði verði lækkaður. Vegfarendur hvattir til að sýna þolinmæði og gera ráð fyrir mun lengri ferðatíma. Fylgist líka með upplýsingavef Vegagerðinnar.
Á Vestfjörðum verða eftirfarandi vegir með tímabundna einstefnu:
Örlygshafnarvegur (612) út að Látrabjargi. Fjöldatakmörkun verður við bjargið.
Rauðasandsvegur (614). Líklegt að fjöldatakmörkun verði á Rauðasandi.
Einstefna verður frá Barðastrandarvegi frá klukkan 12:00 þann 12. ágúst 2026. Eftir að atburðinum lýkur verður umferð stýrt til baka eftir sömu leið.
Vegurinn upp á Bolafjall verður lokaður almennri umferð.

Nældu þér í örugg sólmyrkvagleraugu snemma. Gleraugnasalan okkar er fjáröflun fyrir fræðslu um myrkvann fyrir börn og fullorðna, Íslendinga og ferðalanga.
Leggðu snemma af stað á áfangastað, helst daginn áður – dveldu næturlangt ef leyfilegt er og þú hefur tök á.
Búðu þig undir mikinn mannfjölda ef vel viðrar, sér í lagi þar sem almyrkvinn varir lengst.
Leggðu áherslu á aðgengi og góðan himinn í stað þess að einblína á lengd almyrkvans. Munurinn lengd almyrkvans á Patreksfirði og Látrabjargi eru aðeins 9 sekúndur en á Patreksfirði er öll þjónusta miklu aðgengilegri, þ.e. veitingasala, salerni o.s.frv.
Dveldu lengur eftir almyrkvann og hinkraðu eftir að umferðin minnki.
Fylltu bensíntankinn eða bílarafhlöðuna.
Hafðu með þér drykki og nesti.
Hafðu góð hlífðarföt með, sem og sólarvörn.
Fylgstu með skýjahuluspánni og gervitunglamyndum á icelandatnight.is
Nældu þér í öruggar sólarsíur á sjónauka eða myndavélarlinsur snemma.
Lærðu einfaldar aðferðir til að fylgjast með sólmyrkvanum á öruggan hátt.
Ef þú ert að upplifa almyrkva í fyrsta sinn mælum við ekki með því að þú eyðir tímanum í myndatöku.
Ekki fljúga drónum. Drónar eru mjög óvinsælir meðal almyrkvaunnenda.
Ekki leika tónlist á meðan almyrkvanum stendur.
Fagnaðu eftir á, alveg sama hvernig viðrar. Þú upplifir þennan einstaka viðburð aldrei aftur frá Íslandi.

Frá landnámi hafa þrír almyrkvar orðið á Vestfjörðum. Frá 2026 til ársins 3000 verða fimm almyrkvar til viðbótar. Lengd almyrkva í listanum hér undir miðast við lengsta myrkva á Vestfjörðum:
29. október 878: 0m 32s við Látrabjarg
25. febrúar 1077: 1m 48s yst á skaganum milli Dýrafjarðar og Önundarfjarðar
30. mars 1131: 3m 41s við Aðalvík og Fljótavík á Hornströndum
12. ágúst 2026: 2m 13s við Látrabjarg
26. júní 2196: 1m 37s á Hornströndum
17. júní 2672: 1m 28s á Hornströndum
2. september 2817: 1m 11s á Hornströndum
7. september 2974: 2m 04s á Hornströndum

Sævar Helgi Bragason hefur upplifað fjóra almyrkva á sólu til þessa. Hann er vísindamiðlari, rithöfundur, dagskrárgerðarmaður og eigandi og ritstjóri solmyrkvi2026.is og icelandatnight.is