
Látrabjarg er einn allra magnaðasti staðurinn á Jörðinni til að upplifa almyrkvann 12. ágúst 2026 en á sama tíma einn sá allra erfiðasti
Látrabjarg á Vestfjörðum er einn magnaðasti staður á Jörðinni til að upplifa almyrkvann á sólu 12. ágúst 2026. Þar tvinnast saman einstakt, glæsilegt umhverfi og lengsti mögulegi almyrkvi á Íslandi í 2 mínútur og 13,4 sekúndur sem hefst kl. 17:44. Þess vegna horfa margir almyrkvaunnendur á Látrabjarg með aðdáunaraugum. Á sama tíma er Látrabjarg þó eitt allra torveldasta svæðið á almyrkvaslóðinni.
Flestitr Íslendingar vita eflaust að ekki er hægðarleikur að komast í friðlandið á Látrabjargi. Þetta glæsilega svæði er langt í burtu og á stundum ákaflega varasamt. Þau sem hyggjast elta almyrkvann þangað verða því að undirbúa sig mjög vel.
„Á svæðinu er hvergi hægt að leita skjóls. Það verður engin þjónusta í boði – enginn matur, ekkert vatn. Fólk sem kemur að Látrabjargi þarf því að búa þannig um hnútana að þau geti hafst við í sólarhring,“ sagði Kristín Ósk Jónasdóttir sérfræðingur hjá Náttúruverndarstofnun.
Jafnvel í ágúst er allra veðra von við Látrabjarg. Fólk verður því að hafa með sér vatn, mat, hlý föt og búnað eins og það sé á leið í nokkurra klukkustunda gönguferð. Landslagið er þannig og vegirnir torfærir svo seinkanir eru ekki aðeins mögulegar heldur líklegar fari eitthvað úrskeiðis.
„Ef atvik kemur upp gæti fólk orðið fast á Látrabjargi þar til búið er að leysa úr flækjunni,“ sagði Kristín. „Þess vegna beinum við því til fólks að taka allt með sem þarf til að lifa af í sólarhring – vatn, mat, teppi, klósettpappír – allt!“
„Í bakpokanum mínum hef ég alltaf eitthvað til að leggjast eða sitja á,“ sagði Kristín. Hún mælir líka með því að koma með aukalög af fötum, vettlinga, húfur og ullarpeysur. „Ég tæki með teppi og regn- og vindheld föt. Fólk þarf að búa sig undir að vera utandyra í langan tíma.“
Örlygshafnarvegur (612) sem liggur út á Látrabjarg er 45-50 kílómetra langur, mjór og seinfarinn malarvegur. Þann 12. ágúst 2026 hefst umferðarstýring á veginum sem stendur fram yfir sólmyrkvann ( til kl. 19:00). Leyfilegur hámarkshraði verður lækkaður og tekin upp tímabundin einstefna. Þá verður fjöldatakmörkun við bjargið - 3000 manns.
„Lögreglan mun stöðva alla sem eru á leið út á Látrabjarg,“ sagði Kristín. Umferðarstýringin hefst líklega þar sem Örlygshafnarvegur tengist við Barðastrandarveg (62). „Tekin verður upp einstefna svo aðeins verður hægt að aka út að Látrabjargi um morguninn og þangað til eftir myrkvann kl. 19.“
„Vegurinn er mjór malarvegur og brattur og ræður alls ekki við mikla umferð. Þess vegna er einstefna nauðsynleg ráðstöfun,“ sagði Kristín. Engum verður heldur leyft að leggja bílum við veginn svo tryggja meig aðgengi viðbragðsaðila komi eitthvað upp á. „Við verðum að gæta þess að fólk aki og fari sérstaklega varlega. Það má ekki verða slys þarna,“ sagði Kristín.
Þótt fólk komist akandi út að Látrabjargi er plássleysi annað vandamál. Við Látrabjargi er aðeins pláss fyrir 120 bíla. Næsta bílastæði er í Breiðavík sem er um 13 kílómetra í burtu.

Látrabjarg er friðland og því gilda strangar reglur um umgengni á svæðinu. „Mjög mikilvægt er að fólk viti að ekki er leyfilegt að gista við Látrabjarg yfir nótt,“ sagði Kristín. „Svo jafnvel þótt fólk komi á húsbílum má ekki leggja á bílastæðinu og gista þar yfir nóttina — komi einhver um nóttina verður þeim gert að yfirgefa svæðið.“ Gæsla verður á svæðinu.
Drónar eru heldur ekki leyfilegir, bæði til að tryggja öryggi fólks og vernda dýralíf. Tímasetning myrkvans gæti þó vart verið betri upp á verndun dýralífsins að gera. Við Látrabjarg er blómlegt fuglalíf en myrkvinn er seint á fengitímanum. „Flestir fuglar verða farnir, sem er léttir því við viljum ekki trufla þá,“ sagði Kristín.

Er Látrabjarg því besti staðurinn til að upplifa almyrkvann?
Breiðavík er aðeins 13 kílómetra frá Látrabjargi og þar er almyrkvinn tveimur sekúndum styttri. Þar er allt aðgengi aftur á móti miklu betra.
„Breiðavík er dásamlega fallegur staður til að dvelja á,“ sagði Kristín. Þar er lítið hótel sem þó er löngu uppbókað og lítið tjaldsvæði sem gæti verið stækkað fyrir myrkvann. „Landeigandinn hvetur fólk til þess að dvelja bara þar en fara ekki lengra.“ Syðst í Breiðuvík verður almyrkvinn 2 mínútur og 11,4 sekúndur.
Sveitastjórn Vesturbyggðar hvetur líka gesti til að upplifa myrkvann í Patreksfirði (2 mínútur og 5 sekúndur), Tálknafirði (2 mínútur) og Bíldudal (1 mínúta og 52 sekúndur) þar sem öll þjónusta er til staðar.
Þótt Látrabjarg sé einn magnaðasti staður á Jörðinni til að upplifa almyrkvann þarf að huga vel þær áskoranir sem fylgja því að fara þangað. Myrkvinn verður ógleymanlegur þeim sem leggja það á sig. Fyrir flesta er þó skynsamlegra að koma sér fyrir á öðrum stað og njóta sömu glæsilegu sýningar á öruggan hátt. Ekki gera þessi 10 mistök.
Með kaupum á sólmyrkvagleraugum og öðrum varningi frá solmyrkvagleraugu.is styður þú við bakið á fræðsluverkefnum sem tengjast sólmyrkvanum.

Jamie Carter er fremsti sólmyrkvablaðamaður heims. Hann skrifar á WhenIsTheNextEclipse.com og skrifar um myrkva, stjörnuskoðunarferðamennsku og stjörnufræði fyrir Forbes.com, Space.com, New Scientist, Live Science, Sky & Telescope og BBC Sky At Night. Í ágúst 2026 verður hann fyrirlesari um borð í Sylvia Earle sem siglir frá Íslandi í leiðangri á vegum New Scientist.