Hópsnes in Reykjanes peninsula. Credit: Visit Reykjanes

Sólmyrkvinn 12. ágúst 2026 á Reykjanesskaga

Hagnýtar upplýsingar um almyrkvann, safnsvæði, vegalokanir, umferðarstýringu og bílastæði

Íbúar á Reykjanesskaga upplifa almyrkva á sólu í fyrsta sinn síðan 9. júlí 1469. Vestast á skaganum er almyrkvinn lengstur 1m 48s svo ef vel viðrar gæti Reykjanesskagi orðið fjölmennasta svæðið, þökk sé nálægð við höfuðborgarsvæðið þar sem almyrkvinn er næstum mínútu styttri.

Alskuggi tunglsins er yfir Reykjanesskaga í 2 mínútur og 21 sekúndu. Hann snertir Reykjanesskaga fyrst við Garðskagavita í Suðurnesjabæ kl. 17:47:47 en yfirgefur það við Reykjanestá kl. 17:50:08. Eftir það líða 170 ár til alskuggi tunglsins fellur aftur á Ísland.

  • Fjöldi íbúa innan almyrkvaslóðar: ~25.000

  • Áætlaður fjöldi ferðafólks á Reykjanesskaga 12. ágúst 2026 miðað við hagstætt veður: Frá XXXXX upp í XXXXX

Gagnvirkt sólmyrkvakort af Reykjanesskaga

Smelltu á gagnvirka kortið hér undir. Ör birtist sem vísar í þá átt sem myrkvinn verður á himni. Gluggi birtist sem sýnir allar tímasetningar nákvæmar upp á sekúndu, lengd almyrkva og sólarhæð. Þá sýnir kortið skuggavarp af landslagi kl. 17:45 miðvikudaginn 12. ágúst. Safnsvæði verða merkt inn á kortið sem og upplýsingar um umferðarstýringar þegar nær dregur.

Tímasetningar sólmyrkva á Reykjanesskaga

Tímasetningar miðast við útsýnisstaði. Notaðu gagnvirka kortið til að sjá nákvæmari upplýsingar.

Staður

Lengd almyrkva

Deildarmyrkvi hefst

Almyrkvi hefst

Almyrkvi í hámarki

Almyrkva lýkur

Deildarmyrkva lýkur

Kleifarvatn

1m 13s

16:47:43

17:48:34

17:49:11

17:49:47

18:48:03

Vogar

1m 32s

16:47:17

17:48:11

17:48:57

17:49:43

18:47:54

Grindavík

1m 37s

16:47:30

17:48:24

17:49:12

17:50:01

18:48:09

Reykjanesbær

1m 40s

16:47:11

17:48:04

17:48:54

17:49:44

18:47:52

Keflavíkurflugvöllur

1m 43s

16:47:09

17:48:01

17:48:52

17:49:44

18:47:52

Garður

1m 43s

16:47:01

17:47:52

17:48:44

17:49:35

18:47:43

Sandgerði

1m 45s

16:47:03

17:47:54

17:48:47

17:49:39

18:47:47

Hafnir

1m 46s

16:47:14

17:48:05

17:48:58

17:49:51

18:47:58

Reykjanesviti

1m 48s

16:47:26

17:48:16

17:49:12

17:50:05

18:48:12

Safnstaðir á Reykjanesskaga

Upplýsingar væntanlegar

Umferðarstýringar og vegalokanir

Á Reykjanesi verður umferðarstýring sem hefst kl. 12:00 þann 12. ágúst 2026 á eftirfarandi vegum:

  • Garðskagavegur (45) frá Nesvegi að Sandgerði

  • Vatnsleysustrandarvegur (420) frá Vogum að Kúagerði

Gera má ráð fyrir að hámarkshraði verði lækkaður á þessum degi. Vegfarendur eru hvattir til að sýna þolinmæði og gera ráð fyrir lengri ferðatíma.

Heilræði fyrir þau sem fylgjast með sólmyrkvanum á Reykjanesskaga

  • Nældu þér í örugg sólmyrkvagleraugu snemma. Gleraugnasalan okkar er fjáröflun fyrir fræðslu um myrkvann fyrir börn og fullorðna, Íslendinga og ferðalanga.

  • Búðu þig undir mikinn mannfjölda ef vel viðrar, sér í lagi þar sem almyrkvinn varir lengst, í Suðurnesjabæ og við Reykjanestá.

  • Leggðu áherslu á aðgengi og góðan himinn í stað þess að einblína á lengd almyrkvans. Sjáist myrkvinn frá Reykjanesskaga er einfaldlega best að vera heima.

  • Leggðu snemma af stað og sýndu þolinmæði.

  • Dveldu lengur eftir almyrkvann og hinkraðu eftir að umferðin minnki.

  • Hafðu góð hlífðarföt með, sem og sólarvörn.

  • Fylgstu með skýjahuluspánni og gervitunglamyndum á icelandatnight.is

  • Nældu þér í öruggar sólarsíur á sjónauka eða myndavélarlinsur snemma.

  • Lærðu einfaldar aðferðir til að fylgjast með sólmyrkvanum á öruggan hátt.

  • Ef þú ert að upplifa almyrkva í fyrsta sinn mælum við ekki með því að þú eyðir tímanum í myndatöku.

  • Ekki fljúga drónum. Drónar eru mjög óvinsælir meðal almyrkvaunnenda.

  • Ekki leika tónlist á meðan almyrkvanum stendur.

  • Fagnaðu eftir á, alveg sama hvernig viðrar. Þú upplifir þennan einstaka viðburð aldrei aftur frá Íslandi.

Tryggðu þér sólmyrkvagleraugu í tíma frá sólmyrkvagleraugu.is

Almyrkvar á Reykjanesskaga frá landnámi til ársins 3000

Lengd almyrkva miðast við lengsta myrkva á Reykjanesskaga.

  • 29. október 878 – 1m 14s (Reykjanestá)

  • 16. júlí 1330 – 0m 55s (Grindavík og Hafnir)

  • 17. júní 1433 – 3m 23s (Reykjanestá)

  • 9. júlí 1469 – 0m 25s (skammt austan við Herdísarvík)

  • 12. ágúst 2026 – 1m 49s

  • 26. maí 2245 – 1m 9s

  • 26. maí 2636 – 0m 50s (almyrkvi við sólsetur)

Frekari upplýsingar fyrir sólmyrkvann á Reykjanesskaga