Reykjavík. Credit: VisitIceland.com

Sólmyrkvinn á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst 2026

Hagnýtar upplýsingar um almyrkvann, safnsvæði, vegalokanir, umferðarstýringu og bílastæði

Höfuðborgarbúar upplifa almyrkva á sólu í fyrsta sinn síðan 17. júní 1433. Lengd myrkvans er mjög misjöfn eftir því hvar innan höfuðborgarsvæðisins fólk er. Stystur er almyrkvinn austast en lengstur vestast. Almyrkvinn er lengstur um 1m 8s á golfvellinum á Seltjarnarnesi, 1m 10s við Skógtjörn á Álftanesi í Garðabæ og allt að 1m 10s í iðnaðarhverfinu á Völlunum í Hafnarfirði.

Mosfellsdalur er utan almyrkvaslóðar. Fólk sem þar býr er eindregið hvatt til þess að ferðast inn í almyrkvaslóðina.

Ef vel viðrar á höfuðborgarsvæðinu er engin sérstök ástæða fyrir íbúa til þess að leggja í langar ökuferðir út á land. Eini munurinn er lengd almyrkvans. Þótt almyrkvinn sé stuttur ætti alltaf að setja heiðan himinn í forgang í stað þess að einblína á lengdina.

Alskuggi tunglsins er yfir höfuðborgarsvæðinu í 1 mínútu og 24 sekúndur. Hann snertir höfuðborgarsvæðið fyrst við Gróttuvita kl. 17:48:07 en yfirgefur það við iðnaðarhverfið á Völlunum í Hafnarfirði kl. 17:49:32.

  • Fjöldi íbúa innan almyrkvaslóðar: ~240.000

  • Fjöldi skemmtiferðaskipa sem koma í land í Reykjavík vegna myrkvans: XX

Gagnvirkt sólmyrkvakort af höfuðborgarsvæðinu

Smelltu á gagnvirka kortið hér undir. Ör birtist sem vísar í þá átt sem myrkvinn verður á himni. Gluggi birtist sem sýnir allar tímasetningar nákvæmar upp á sekúndu, lengd almyrkva og sólarhæð. Þá sýnir kortið skuggavarp af landslagi kl. 17:45 miðvikudaginn 12. ágúst. Safnsvæði eru merkt inn á kortið sem og upplýsingar um umferðarstýringar og götulokanir. Sporöskjulaga bletturinn sýnir lögun alskugga tunglsins.

Tímasetningar sólmyrkva á höfuðborgarsvæðinu

Tímasetningar miðast við tiltekna útsýnisstaði. Lengd almyrkva er talsvert breytileg innan höfuðborgarsvæðisins. Notaðu gagnvirka kortið til að sjá nákvæmari upplýsingar.

Staður

Lengd almyrkva

Deildarmyrkvi hefst

Almyrkvi hefst

Almyrkvi í hámarki

Almyrkva lýkur

Deildarmyrkva lýkur

Kjalarnes

46s

16:47:04

17:48:13

17:48:36

17:48:59

18:47:26

Mosfellsbær

30s

16:47:14

17:48:30

17:48:44

17:48:59

18:47:33

Grafarvogur

46s

16:47:15

17:48:24

17:48:47

17:49:10

18:47:37

Grafarholt / Úlfarsárdalur

40s

16:47:18

17:48:30

17:48:50

17:49:09

18:47:39

Norðlingaholt

45s

16:47:20

17:48:30

17:48:53

17:49:15

18:47:42

Árbær

48s

16:47:18

17:48:26

17:48:50

17:49:14

18:47:40

Breiðholt

51s

16:47:19

17:48:26

17:48:52

17:49:17

18:47:42

Fossvogur / Háaleiti / Bústaðir

57s

16:47:15

17:48:20

17:48:49

17:49:17

18:47:40

Hlíðar og Teigar

58s

16:47:13

17:48:17

17:48:46

17:49:15

18:47:38

Miðborg

1m

16:47:12

17:48:15

17:48:46

17:49:16

18:47:37

Vesturbær

1m 3s

16:47:10

17:47:13

17:48:45

17:49:16

18:47:37

Seltjarnarnes (golfvöllur)

1m 8s

16:47:08

17:48:09

17:48:43

17:49:17

18:47:36

Kópavogur (Kársnes)

1m 1s

16:47:14

17:48:18

17:48:49

17:49:19

18:47:40

Kópavogur (Vatnsendi)

49s

16:47:21

17:48:29

17:48:54

17:49:18

18:47:44

Garðabær (Urriðaholt)

1m

16:47:20

17:48:24

17:48:54

17:49:24

18:47:45

Garðabær (Ásar)

1m 3s

16:47:17

17:48:20

17:48:20

17:49:23

18:47:43

Hafnarfjörður (Setberg / Ásland)

1m 3s

16:47:21

17:48:24

17:48:55

17:49:26

18:47:47

Hafnarfjörður (Norðurbær / Holt)

1m 5s

16:47:20

17:48:22

17:48:55

17:49:27

18:47:46

Hafnarfjörður (Vellir)

1m 8s

16:47:21

17:48:22

17:48:56

17:49:30

18:47:48

Umferðarstýringar og vegalokanir

  • Mosfellsbær: Ekki gert ráð fyrir götulokunum. Þung umferð á Vesturlandsvegi.

  • Seltjarnarnes: Til að stýra umferðinni verður Suðurströnd frá bílastæðinu við sundlaugina lokuð í vesturátt. Allar þvergötur sem liggja að Suðurströnd verða einnig lokaðar frá Bakkavör að Lindarbraut og Nesbala. Norðurstönd verður opin en lokað verður út að Gróttu annað hvort við Lindarbraut eða Ráðagerði. Vegna verndunar viðkvæmrar náttúru verður horft frá því að fólk safnist saman við Bakkatjörn.

  • Reykjavik: Suðurgata við Hringbraut verður lokuð til að varna umferð inn á Ægissíðu en þvergötur Suðurgötu verða einnig lokaðar. Ægissíða verður lokuð við Hofsvallagötu að vestan og við Dunhaga. Á lokaða svæðinu verði boðið upp á þjónustu á borð við matarvagna og salerni. Lokunin á Suðurgötu mun ekki hafa áhrif á umferð inn í hverfi Vesturbæjar nema Skerjafjörð sunnan flugvallar, en það hverfi verður lokað fyrir umferð inn og út í 4 til 5 klukkustundir. Til skoðunar er að bjóða upp á strætóferðir eða aðrar skipulagðar ferðir inn á lokaða svæðið.

  • Kópavogur: Ekki er gert ráð fyrir götulokunum.

  • Garðabær: Ekki er gert ráð fyrir götulokunum. Á Álftanesi verður hringakstur um Norðurnesveg og Suðurnesveg (í norður- og vesturátt).

  • Hafnarfjörður: Ekki er gert ráð fyrir götulokunum. Þung umferð um Reykjanesbraut í átt að Reykjanesbæ.

Heilræði fyrir þau sem fylgjast með sólmyrkvanum á höfuðborgarsvæðinu

  • Nældu þér í örugg sólmyrkvagleraugu snemma. Gleraugnasalan okkar er fjáröflun fyrir fræðslu um myrkvann fyrir börn og fullorðna, Íslendinga og ferðalanga.

  • Búðu þig undir mikinn mannfjölda ef vel viðrar, sér í lagi þar sem almyrkvinn varir lengst, yst á Seltjarnarnesi og Álftanesi.

  • Leggðu áherslu á aðgengi og góðan himinn í stað þess að einblína á lengd almyrkvans. Sjáist myrkvinn frá höfuðborgarsvæðinu er einfaldlega best að vera heima.

  • Dveldu lengur eftir almyrkvann og hinkraðu eftir að umferðin minnki.

  • Hafðu góð hlífðarföt með, sem og sólarvörn.

  • Fylgstu með skýjahuluspánni og gervitunglamyndum á icelandatnight.is

  • Nældu þér í öruggar sólarsíur á sjónauka eða myndavélarlinsur snemma.

  • Lærðu einfaldar aðferðir til að fylgjast með sólmyrkvanum á öruggan hátt.

  • Ef þú ert að upplifa almyrkva í fyrsta sinn mælum við ekki með því að þú eyðir tímanum í myndatöku.

  • Ekki horfa á myrkvann á skjánum á símanum þínum - slökktu á flash-i á símanum og myndavélinni

  • Ekki fljúga drónum. Drónar eru mjög óvinsælir meðal almyrkvaunnenda.

  • Ekki leika tónlist á meðan almyrkvanum stendur.

  • Fagnaðu eftir á, alveg sama hvernig viðrar. Þú upplifir þennan einstaka viðburð aldrei aftur frá Íslandi.

Tryggðu þér sólmyrkvagleraugu í tíma frá sólmyrkvagleraugu.is

Almyrkvar á höfuðborgarsvæðinu frá landnámi til ársins 3000

Lengd almyrkva miðast við miðborg Reykjavíkur í nútímanum.

  • 16. júlí 1330 – 30s almyrkvi í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, deildarmyrkvi í Reykjavík

  • 17. júní 1433 – 56s, deildarmyrkvi í Mosfellsbæ

  • 12. ágúst 2026 – 1m 00s

  • 26. maí 2245 – 0m 47s

Frekari upplýsingar fyrir sólmyrkvann á höfuðborgarsvæðinu