Icelandic flag and Snæfellsjökull glacier. Credit: Visit West

Sólmyrkvinn 12. ágúst 2026 á Snæfellsnesi og Vesturlandi

Hagnýtar upplýsingar um almyrkvann, safnsvæði, vegalokanir, umferðarstýringu og bílastæði

Ef vel viðrar eru allar líkur á að vestanvert Snæfellsnes verði vinsælasti áfangastaður almyrkvaunnenda 12. ágúst 2026.

Á Snæfellsnesi varir almyrkvinn lengst við Öndverðarnes, vestast á Snæfellsnesi, í 2m 9s. Er það næst lengsti mögulegi almyrkvi á Íslandi á eftir Látrabjargi. Þetta er fyrsti almyrkvinn á sólu á Snæfellsnesi og Vesturlandi síðan 30. mars 1131.

Á Vesturlandi eru Akranes og Borgarnes innan almyrkvaslóðar sem og öll sveitarfélög á Snæfellsnesi. Einu þéttbýlissvæðin á Vesturlandi utan almyrkvaslóðar eru Búðardalur, Bifröst og Hvanneyri. Þar verður yfir 99% deildarmyrkvi, rétt eins og á Varmalandi, Kraumu og Reykholti. Fólk sem þar býr er eindregið hvatt til þess að ferðast inn í almyrkvaslóðina.

Alskuggi tunglsins er yfir Snæfellsnesi og Vesturlandi í 3 mínútur og 34 sekúndur. Hann snertir fyrst Flatey á Breiðafirði kl. 17:45:24 og svo Hellissand og Öndverðarnes á Snæfellsnesi kl. 17:45:43. Alskugginn yfirgefur Snæfellsnes við Hvalhöfða við Malarrif kl. 17:48:16 og Akranes kl. 17:48:58.

  • Fjöldi íbúa innan almyrkvaslóðar: ~17.000

  • Áætlaður fjöldi ferðafólks á Snæfellsnesi 12. ágúst 2026: Frá XXXXX upp í XXXXX

  • Fjöldi skemmtiferðaskipa sem koma í land á Snæfellsnesi vegna myrkvans: XX

Gagnvirkt sólmyrkvakort af Snæfellsnesi og Vesturlandi

Smelltu á gagnvirka kortið hér undir. Ör birtist sem vísar í þá átt sem myrkvinn verður á himni. Glugginn sýnir allar tímasetningar nákvæmar upp á sekúndu, lengd almyrkva og sólarhæð. Safnsvæði hafa verið merkt inn á kortið, sem og upplýsingar um umferðarstýringar. Kortið sýnir ennfremur skuggavarp af landslagi kl. 17:45 miðvikudaginn 12. ágúst. Sporöskjulaga bletturinn sýnir lögun alskugga tunglsins.

Tímasetningar sólmyrkva á Snæfellsnesi og Vesturlandi

Staður

Lengd almyrkva

Deildarmyrkvi hefst

Almyrkvi hefst

Almyrkvi í hámarki

Almyrkva lýkur

Deildarmyrkva lýkur

Flatey

1m 32s

16:44:35

17:45:27

17:46:13

17:46:59

18:45:16

Hellissandur og Rif

2m 7s

16:44:58

17:45:46

17:46:50

17:47:53

18:46:03

Ólafsvík

2m 3s

16:45:05

17:45:53

17:46:55

17:47:56

18:46:06

Grundarfjörður

1m 52s

16:45:14

17:46:02

17:46:58

17:47:54

18:46:05

Stykkishólmur

1m 28s

16:45:12

17:46:05

17:46:49

17:47:33

18:45:50

Hellnar og Arnarstapi

2m 3s

16:45:21

17:46:09

17:47:11

17:48:12

18:46:22

Búðir

1m 56s

16:45:21

17:46:10

17:47:08

17:48:06

18:46:16

Borgarnes

43s

16:46:30

17:47:40

17:48:01

17:48:23

18:46:53

Akranes

1m 6s

16:46:49

17:47:51

17:48:24

17:48:57

18:47:17

Umferðarstýringar og vegalokanir á Snæfellsnesi og Vesturlandi

Á Snæfellsnesi verður umferðarstýring á:

  • Útnesvegi (574) frá Hellissandi að Búðum

Á þessu svæði er enn til skoðunar í hvora áttina umferð verður stýrt með einstefnu. Þó er mikilvægt að vegfarendur geri ráð fyrir umferðarstýringu á þessum kafla.

Heilræði fyrir þau sem ætla að fylgjast með sólmyrkvanum á Snæfellsnesi og Vesturlandi

  • Leggðu snemma af stað á áfangastað eða dveldu næturlangt ef leyfilegt er og þú hefur tök á.

  • Dveldu lengur eftir almyrkvann til að hinkra eftir að umferðin minnki. Athugaðu að ef vel viðrar á Snæfellsnesi má búast við að umferð gangi mjög hægt, sér í lagi eftir á. Borgarnes er flöskuháls.

  • Búðu þig undir mikinn mannfjölda ef vel viðrar, sér í lagi þar sem almyrkvinn varir lengst.

  • Leggðu áherslu á aðgengi og góðan himinn í stað þess að einblína á lengd almyrkvans.

  • Fylltu bensíntankinn eða bílarafhlöðuna.

  • Hafðu með þér drykki og nesti.

  • Hafðu góð hlífðarföt með, sem og sólarvörn.

  • Fylgstu með skýjahuluspánni og gervitunglamyndum á icelandatnight.is

  • Nældu þér í öruggar sólarsíur á sjónauka eða myndavélarlinsur snemma.

  • Lærðu einfaldar aðferðir til að fylgjast með sólmyrkvanum á öruggan hátt.

  • Ef þú ert að upplifa almyrkva í fyrsta sinn mælum við ekki með því að þú eyðir tímanum í myndatöku.

  • Ekki fljúga drónum. Drónar eru mjög óvinsælir meðal almyrkvaunnenda.

  • Ekki leika tónlist á meðan almyrkvanum stendur.

  • Fagnaðu eftir á, alveg sama hvernig viðrar. Þú upplifir þennan einstaka viðburð aldrei aftur frá Íslandi.

Almyrkvar á Snæfellsnesi og Vesturlandi frá landnámi til ársins 3000

Frá landnámi hafa tveir almyrkvar orðið á Snæfellsnesi og Vesturlandi. Frá 2026 til ársins 3000 verða fjórir almyrkvar til viðbótar. Lengd almyrkva í listanum hér undir miðast við lengsta myrkva á Vestfjörðum:

  • 29. október 878: 1m 1s við Þrælavík

  • 30. mars 1131: 2m 29s á Öndverðarnesi

  • 12. ágúst 2026: 2m 09s á Öndverðarnesi

  • 26. júní 2196: 1m 16s á Öndverðarnesi

  • 20. mars 2406: 0m 51s í Ljósufjöllum

  • 2. september 2817: 0m 55s í Búðardal

Almyrkvar á Snæfellsnesi og Vesturlandi frá landnámi til ársins 3000. Mynd: Sævar Helgi Bragason og Andreas Dill / solmyrkvi2026.is

Frekari upplýsingar fyrir sólmyrkvann á Snæfellsnesi og Vesturlandi