Daystar Universal Lens Filter: einfaldasta leiðin til að ljósmynda sólmyrkva

Þessi lauflétta og ódýra sólarsía gæti verið eitt það sniðugasta sem þú kaupir fyrir almyrkvann 12. ágúst 2026

Til að taka myndir af sólmyrkvanum 12. ágúst 2026 á Íslandi þarftu örugga sólarsíu. Ýmislegt er í boði svo það getur verið merkilega snúið að velja rétta síu. Til eru dýrar glersíur sem þræddar eru á tilteknar myndavélalinsur og aðrar sérhæfðar síur fyrir stjörnusjónauka svo úr vöndu eða ráða. Þá þarf líka í huga að dröslast með búnaðinn á Reykjanesskaga, Snæfellsnes eða Vestfirði.

Daystar Universal Lens Filter er sólarsía sem hentar ljósmyndurum ákaflega vel. Við fyrstu sýn virkar hún ekki ýkja merkileg því hún kemur flöt í papparamma sem þú setur saman. Hún virkar nánast of einföld fyrir sólmyrkvamyndatökur. Einfaldleikinn er hins vegar nákvæmlega það sem sían snýst um. Hún er úr vandaðri SolarLite filmu frá bandaríska fyrirtækinu Thousand Oaks, er fislétt, ódýr og fjölhæf og hentar einstaklega vel til að taka myndir af sólinni á öruggan hátt, hvort sem þú notar aðdráttarlinsu, handsjónauka, fuglasjónauka eða litla stjörnusjónauka.

Sólarsía fyrir margar linsur

Flestar ljósmyndasíur eru þræddar á linsur, eins og ND-filterar sem margir kannast við en ætti alls ekki að nota til að ljósmynda sólmyrkva. Daystar síurnar passa á nokkrar linsustærðir en þeim er einfaldlega smeygt yfir linsuna í stað þess að skrúfa þær á. Þá má líka nota Daystar síurnar á sjónauka, fuglasjónauka eða jafnvel handsjónauka. Gæta verður þess í hvívetna að þær detti ekki af. Þú þarft því að festa þær kyrfilega með felti, límbandi og teygjum til öryggis.

Daystar síurnar eru til í þremur stærðum en fjórum útfærslum:

  • ULF-50: Passar á flestar myndavélalinsur sem fylgja DSLR eða speglalausum myndavélum. 50mm í þvermál; passar á linsur með 50–69 mm ytra þvermál.

  • ULF-50-2: Tvær 50mm síur í einum pakka. Passa á handsjónauka með 50mm ljósop, eins 7x50.

  • ULF-70: Fyrir linsur sem eru 65–89 mm að þvermáli. Passar á flestar myndavélalinsur sem taka við 77 mm síum. Passar líka á flesta fuglasjónauka og stóra handsjónauka.

  • ULF-90: Fyrir linsur sem eru 90–109 mm að þvermáli. Passar á sjónauka og stórar linsur sem eru með 80–90 mm ljósop.

Daystar Universal Lens Filter kemur í flötum pakka í þremur stærðum. Mynd: Jamie Carter

Thousand Oaks SolarLite filman í Daystar síunum

Sólarsían frá Daystar er úr SolarLite filmu frá bandaríska fyrirtækinu Thousand Oaks. Almyrkvaunnendur hafa notað SolarLite síur um árabil með frábærum árangri og einróma lofi. Thousand Oaks er, ásamt Baader Planetarium og American Paper Optics, eitt fremsta fyrirtæki heims í framleiðslu á öruggum sólarsíum. SolarLite dregur úr birtu sólar um 99,999% og uppfyllir ISO 12312-2 staðalinn um ljósdeyfingu og öryggi augna. Sían er því örugg til að nota með myndavélum og öðrum sjóntækjum, sem og að nota í sólmyrkvagleraugum.

Í gegnum Thousand Oaks SolarLite filmuna er sólin appelsínugul á litinn sem mörgum þykir þægilegt. Baader AstroSolar filman, sem er skarpari, gefur aftur á móti bláhvíta mynd sem er nær náttúrulegum lit sólar.

SolarLite filman er sömuleiðis slitsterkari en AstroSolar filman frá Baader. Papparamminn utan um hana sýnir eflaust merki um slit eftir umtalsverða notkun en filman sjálf er mjög slitsterk. Ef þú sættir þig við að teipa Daystar síuna endist hún árum saman.

Mynd af sólinni tekin með Daystar síunni á 400mm linsu, ISO 100, f8, 1/30s. Mynd: Jamie Carter

Gerð fyrir sólmyrkvadaginn

Sólarsíur eru aðeins notaðar í deildarmyrkvanum, fyrir og eftir almyrkva. Þegar almyrkvinn hefst og tunglið hylur sólina alveg þarf að fjarlægja síuna svo kóróna sólar sjáist. Sían er svo sett á aftur um leið og almyrkva lýkur. Það kemur mörgum á óvart hve hratt almyrkvinn hefst og lýkur svo hafa þarf hraðar hendur.

Daystar síunni er einfaldlega smeygt yfir fremri enda linsunnar eða sjónaukans. Því er hægt að setja hana á og taka af miklu hraðar en síur sem skrúfast á linsurnar. Þess vegna eru skrúfaðar eða þræddar síur alls ekki heppilegur kostur. Á Íslandi stendur almyrkvinn yfir í mínútu eða tvær svo einfaldleikinn er lykilatriði.

Ég mæli sterklega með því að hafa teip meðferðis. Þótt sían passi örugglega á getur hún fokið af í vindhviðu og það viltu alls ekki. Ef þú festir hana með límbandi tryggirðu að hún detti ekki af. Þegar sólmyrkvi er hátt á himni hjálpar þyngdarkrafturinn til við að halda Daystar síunni fastri. Á Íslandi verður sól hins vegar í aðeins um 25 gráðu hæð í vestri svo vindhviða getur hæglega feykt henni af.

Festu því tvö eða þrjú límbönd á papparammann og linsuna (gættu þess að líma ekki á fókusinn!). Það tryggir að sían er örugglega föst en samt fljótlegt að taka hana af.

Daystar síurnar passa utan um flestar myndavélalinsur. Mynd: Jamie Carter

Baader AstroSolar eða Daystar sían?

Daystar sían er frábær, sér í lagi þegar haft er hugfast hve ódýr hún er. Á aðdráttarlinsu skilar hún góðum kontrasti, skýrum sólblettum og fallegum myndum af sólinni sem krefjast lítillar myndvinnslu eftir á. Í samanburði við Baader AstroSolar filmuna eru myndirnar örlítið mýkri og krefjast örlítið lengri lýsingartíma því SolarLite filman gefur dimmari mynd. Munurinn kemur aðallega fram fyrir lengri brennivíddir og ljósmyndun sólar í hárri upplausn. Daystar sían er því sérstaklega kjörin fyrir linsur sem eru með 70-400 mm brennivídd.

Þetta er ástæða þess að auðvelt er að mæla með Daystar síunum. Vert er að hafa í huga að þótt þær séu einfaldar og skili kannski ekki allra skörpustu myndunum eru bestu fylgihlutirnir fyrir sólmyrkva oft þeir sem einfalda vinnuna. Daystar síurnar gera nákvæmlega það. Þær gera ljósmyndurum kleift að hafa minni áhyggjur af búnaðinum en gefa þeim meiri tíma til að njóta fegurstu sýningar náttúrunnar.

Viltu styðja framtakið?

Með kaupum á sólmyrkvagleraugum, sólar´sium og öðrum varningi frá sólmyrkvagleraugu.is styður þú við vitundarvakningu og fræðslu um sólmyrkvann fyrir börn og fullorðna, Íslendinga og útlendinga.

Frekari fróðleikur

Höfundur

Jamie Carter er fremsti sólmyrkvablaðamaður heims. Hann skrifar á  WhenIsTheNextEclipse.com og skrifar um myrkva, stjörnuskoðunarferðamennsku og stjörnufræði fyrir Forbes.comSpace.comNew ScientistLive ScienceSky & Telescope og BBC Sky At Night. Í ágúst 2026 verður hann fyrirlesari um borð í Sylvia Earle sem siglir frá Íslandi í leiðangri á vegum New Scientist