
Solar Snap hjálpar þér að taka fínar myndir af öllum stigum sólmyrkvans með snjallsímanum þínum
Í dag vilja flestir taka eigin myndir af sólmyrkvum með snjallsímunum sínum. Skiljanlega. Það er augljóslega hægt en hafa verður nokkur atriði í huga. Ef þú beinir símanum beint að sólinni og smellir af verður myndin heldur óspennandi. Sólin agnarsmá og yfirlýst, sennilega úr fókus og snjallsímamyndavélin veit varla hvað hún á að gera við þessa stjörnu sem er miklu skærari en allt annað í kring. Ef þú súmar inn að henni er líka hætta á að þú skemmri myndflögu símans – nema þú notir sólarsíu.
Solar Snap er lausn á þessu. Solar Snap er hugarfóstur stjörnufræðingsins og almyrkvaunnandans Dr. Douglas Duncan sem starfaði meðal annars við Hubble geimsjónaukann.
Í Solar Snap pakkanum, sem kostar 2990 kr hjá solmyrkvagleraugu.is, fær notandi tvö sólmyrkvagleraugu og tvær sólarsíur sem festast á snjallsíman með frönskum rennilás sem fylgir með. Ef þú sækir svo samnefnt snjallsímaapp, sem er hugsað sérstaklega til að taka myndir af sólmyrkvum, ertu komin(n) með einföldustu leiðina til að ná ágætum myndum af sólmyrkvanum með símanum þínum


Flestir eiga snjallsíma en ekki langar aðdráttarlinsur, sjónauka, rafdrifin sjónaukastæði eða sérhæfðar sólarsíur. Í almyrkvum á sólu reyna milljónir manna að taka myndir með símum sem eru alls ekki hugsaðir til þess heldur fremur að fanga landslag, fólk og hversdagsleikann. Símarnir hafa aldrei aðdráttarlinsu sem þarf til að ná góðum nærmyndum og því verður sólin alltaf lítil á myndunum.

Solar Snap leysir þetta með tvenns konar hætti. Í fyrsta lagi fylgja pakkanum sérstakar sólarsíur sem festar eru framan á myndavél snjallsímans og henta til að taka myndir af deildarmyrkvanum, þegar tunglið er að færast fyrir sólina. Í öðru lagi hjálpar samnefnt app, sem kaupa þarf sérstaklega en kostar lítið, við að stilla lýsingartíma, súm og fókus. Appið hentar þess vegna mun betur en myndavélaappið í símanum.
Mikilvægt er að stilla væntingum í hóf því Solar Snap snýst alls ekki um að taka framúrskarandi myndir, heldur auðvelda myndatöku á sólmyrkvum. Því skaltu ekki búast við hnífskörpum myndum af myrkvaðri sól sem komast nálægt þeim sem reyndir myrkvaljósmyndarar ná með mun sérhæfðari búnaði. Solar Snap skilar þér þó miklu betri myndum en það sem síminn einn og sér hefur upp á að bjóða.

Þótt sólarsíurnar séu mikilvægar er appið lykilatriði. Solar Snap appið býður upp á ólíkar stillingar fyrir mismunandi stig sólmyrkvans. Deildarmyrkvastillingin (e. partial mode) er til að ljósmynda sólina með sólarsíunni á en almyrkvastillingin (e. Totality mode) sjálfvirknivæðir ferlið og tekur mismunandi myndir á tíu sekúndna fresti.
Sjálfvirknin hjálpar líka til við helsta vandamál þeirra sem ljósmynda sólmyrkva í fyrsta sinn: Að horfa með berum augum og fikta við myndavélina á sama tíma. Solar Snap getur séð sjálft um að taka myndirnar á meðan þú horfir en þá er líka heppilegast að setja snjallsímann á þrífót.
Solar Snap er samt ekki töfralausn. Snjallsímar takmarkast af litlum linsum og litlum myndflögum. Jafnvel þótt súmað sé að sólinni í appinu er hún lítil í samanburði við aðdráttarlinsu eða sjónauka. Til að fá stærri mynd þurfa notendur að reiða sig á starfrænt súm sem dregur óhjákvæmilega úr myndgæðunum. Og þar sem þú þarft að súma inn eykst hristingur talsvert sem dregur úr myndgæðum, nema snjallsíminn sé festur á þrífót.

Solar Snap einfaldar ljósmyndun sólmyrkva en kemur ekki í stað alvöru ljósmyndabúnaðar. Símarnir eru merkilega góðir til að taka víðmyndir af almyrkvanum með forgrunni. Vertu bara viss um að þú sækir Solar Snap appið áður en þú myrkvinn skellur á og æfðu þig fyrirfram.

Með kaupum á Solar Snap, sólmyrkvagleraugum og öðrum varningi frá sólmyrkvagleraugu.is styður þú við vitundarvakningu og fræðslu um sólmyrkvann fyrir börn og fullorðna, Íslendinga og útlendinga.

Jamie Carter er fremsti sólmyrkvablaðamaður heims. Hann skrifar á WhenIsTheNextEclipse.com og skrifar um myrkva, stjörnuskoðunarferðamennsku og stjörnufræði fyrir Forbes.com, Space.com, New Scientist, Live Science, Sky & Telescope og BBC Sky At Night. Í ágúst 2026 verður hann fyrirlesari um borð í Sylvia Earle sem siglir frá Íslandi í leiðangri á vegum New Scientist.