
Ef þú ætlar að beina myndavél, handsjónauka eða sjónauka að sólinni í deildarmyrkvanum þarftu líka örugga sólarsíu
Það mikilvægasta sem þú gerir fyrir sólmyrkva er að verða þér úti um örugg sólmyrkvagleraugu. Ef þú ætlar að beina myndavél, handsjónauka eða sjónauka að sólinni í deildarmyrkvanum þarftu líka örugga sólarsíu sem fest er á fremri enda linsunnar. Án sólarsíu getur sólarljósið skemmt búnaðinn þinn og skapað þér og öðrum mikla hættu. Ef horft er í gegnum sjónauka án sólarsíu skemmast augun á augnabliki.
Til eru fjölmargar tilbúnar sólarsíur en margir ljósmyndarar kjósa gjarnan að útbúa sínar eigin síur úr A5 eða A4 AstroSolar sólarsíufilmum frá þýska fyrirtækinu Baader Planetarium.
Í huga flestra almyrkvaunnenda eru sólarsíurnar frá Baader Planetarium staðalinn sem aðrar síur eru bornar saman við. Þær gefa sérstaklega skarpar myndir og frábæran kontrast og sýna sólina í sínum náttúrulega hvíta lit. Ein A4 örk dugir oft til að útbúa síur á nokkrar linsur, handsjónauka og jafnvel litla stjörnusjónauka líka. Ef þú hyggst ljósmynda eða horfa á sólmyrkvann 12. ágúst 2026 fær Baader AstroSolar filman okkar mestu meðmæli.

AstroSolar sólarsían frá Baader er sérhönnuð til að skoða og taka myndir af sólinni, ólíkt hefðbundnum ljósmyndasíum eins og ND-filterum sem eru alls, alls ekki nægilega öruggar. Ljósþéttnin er 5,0 og dregur sían því úr birtu sólar um 99,999% en hleypir í gegn örlítið meira útfjólubláu ljósi en síur úr fjölliðum eða gleri. Fyrir vikið gefur sían mun skarpari mynd af sólblettum og jaðri sólarinnar, sér í lagi þegar notuð er aðdráttarlinsa á myndavél. Í gegnum síuna er sólin í sínum náttúrulega hvíta lit en ekki appelsínugul eins og í gegnum margar aðrar síur. Það gefur ljósmyndurum meiri sveigjanleika í myndvinnslu eftir á.
Hins vegar verður að fara varlega með AstroSolar síuna. Hún er viðkvæm málmörk en lykilatriðið er að handleika hana varlega og forðast að strekkja hana um of. Engu máli skiptir þótt hún sé krumpuð eða í henni séu brot. Það hefur engin áhrif á myndgæðin.

Sáraeinfalt er að útbúa sína eigin sólarsíu með Baader AstroSolar filmunni. Það eina sem þarf er pappi, skæri, hnífur, lím og límband. Sían verður að passa vel yfir ljósopið, þ.e. fremri endann á sjónauka, handsjónauka eða myndavélalinsu.
Byrjaðu á að mæla ytra þvermál ljósopsins.
Skerðu út tvo jafn stóra pappahringi sem eru örlítið stærri en ljósopið.
Settu AstroSolar síuna varlega milli pappahringjanna tveggja og límdu hana fasta. Alls ekki strekkja á síunni!
Útbúðu því næst stífan pappahólk sem passar á linsuna eða sjónaukann. Gættu þess að hólkurinn passi vel utan um en sé samt auðvelt að taka hratt af. Límdu hólkinn á síuna. Reyndu að betrumbæta síuna eins og unnt er svo hún endist lengur.
Aðferðin virkar hvort sem þú ert að setja saman síu fyrir aðdráttarlinsur, handsjónauka eða litla stjörnusjónauka. Ein A4 örk dugir oftar en ekki fyrir nokkur sjóntæki.

Þau sem ætla sér að ljósmynda sólmyrkvann 12. ágúst 2026 mega alls ekki gleyma því að sían er aðeins notuð á meðan deildarmyrkvinn stendur yfir. Við almyrkva er sían tekin af og sett upp aftur eftir almyrkva. Við almyrkvann hylur tunglið sólina alveg, svo eina leiðin til þess að bæði sjá og ljósmynda almyrkvann er að fjarlægja gleraugu og síur. Og það er 100% öruggt enda sést sólin þá ekki. Því hraðar sem þú getur tekið síuna af og sett aftur upp, því betra. Léttar pappasíur er mun fljótlegra að taka af og setja upp aftur en síur sem skrúfast á linsur.
Þetta skiptir máli því almyrkvinn á Íslandi er stuttur, aðeins nokkrar sekúndur upp í rúmar tvær mínútur. Ekki sóa þessum dýrmætu sekúndum í að glíma við búnaðinn þinn.
Að sjálfsögðu vilja ekki allir verja kvöldstund í að setja saman eigin sólarsíur. Baader býður þess vegna upp á fjölmargar tilbúnar síur úr sama AstroSolar efni. Fyrir marga ljósmyndara er einföld A4 örk þó freistandi. Hún er ódýr, fislétt og hægt að sníða alveg að eigin þörfum á sama tíma og myndgæðin eru framúrskarandi. Á einni klukkustund getur þú útbúið eigin sólarsíu fyrir nánast hvaða sjóntæki sem þú átt.
Með kaupum á sólmyrkvagleraugum, sólar´sium og öðrum varningi frá sólmyrkvagleraugu.is styður þú við vitundarvakningu og fræðslu um sólmyrkvann fyrir börn og fullorðna, Íslendinga og útlendinga.
