Almyrkvi úr bókinni Sólmyrkvar eftir Sævar Helga Bragason. Mynd: Elías Rúní

Ný bók um sólmyrkva komin út

Fróðleg bók fyrir krakka um fegurstu sýningu náttúrunnar og sólmyrkvagleraugu fylgja með

Hvað er svona merkilegt við almyrkva á sólu?

Sólmyrkvar eru magnaðasta sýning sem náttúran bíður upp á. Alger sirkus! En þeir eru ekki bara einstaklega fallegir, heldur hafa þeir hjálpað okkur að afhjúpa leyndardóma sólar, staðfest eina merkilegustu vísindakenningu sögunnar og leitt í ljós að sólarhringurinn á Jörðinni er að lengjast.

Litmyndir Elíasar Rúna eru stórsniðugar og útskýra flókna hluti á skýran hátt. Hamfarir og Kúkur, piss og prump, úr sama bókaflokki, voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Um hvað er fjallað í bókinni?

Í bókinni eru merkilegar sögur af fólki sem lagði mikið á sig til að sjá tunglið hylja sólina og einnig útskýrt hvernig á að fylgjast með sólmyrkvum á öruggan hátt.

Sagt er frá því þegar höfundur fór til Indónesíu til að elta sinn fyrsta almyrkva sem á endanum varð glæpsamleg ævintýraför.

Með bókinni fylgja líka örugg sólmyrkvagleraugu.

Arthur Eddington virðir fyrir sér almyrkva á sólu árið 1919. Úr bókinni Sólmyrkvar. Mynd: Elías Rúni / Forlagið
Arthur Eddington virðir fyrir sér almyrkva á sólu árið 1919. Úr bókinni Sólmyrkvar. Mynd: Elías Rúni / Forlagið

Hvar er hægt að kaupa bókina Sólmyrkvar?

Sólmyrkvar og sólmyrkvagleraugun sem fylgja með
Sólmyrkvar og sólmyrkvagleraugun sem fylgja með
Höfundur
Sævar Helgi Bragason

Sævar Helgi Bragason hefur upplifað fjóra almyrkva á sólu til þessa. Hann er vísindamiðlari, rithöfundur, dagskrárgerðarmaður og eigandi og ritstjóri solmyrkvi2026.is og icelandatnight.is