
Með því að horfa í átt til sólar síðdegis 30. apríl 2026 geturðu séð nákvæmlega hvar á himni almyrkvinn 12. ágúst næstkomandi verður.
Hvar ætlar þú að vera kl. 17:48 fimmtudaginn 30. apríl 2026? Ef þú ert að undirbúa þig fyrir almyrkva á sólu 12. ágúst næstkomandi á Íslandi, ætti aðeins einn staður að koma til greina: Úti, undir berum himni, að horfa í vesturátt og nýta þér þannig sjaldgæft tækifæri til að undirbúa þig fyrir myrkvann.
Milli daganna 30. apríl og 12. ágúst eru forvitnileg tengsl: Þeir eru nákvæmlega 52 dögum fyrir og eftir sumarsólstöður. Þar af leiðandi ferðast sólin næstum nákvæmlega sömu leið yfir himinninn báða þessa daga.
Síðdegið 30. apríl (og raunar síðdegin dagana í kring líka) sýnir því nákvæmlega hvar á himni tunglið verður þegar það hylur sólina í ágúst. Með því gefst gott tækifæri til að velja útsýnisstaði og gæta þess að hvorki byggingar né landslag byrgi sýn við almyrkvann.
Gagnvirka kortið okkar hjálpar líka til. Það sýnir hvernig byggingar og landslag varpa skuggum kl. 17:45 þann 12. ágúst. Þegar þú smellir á kortið birtist ör sem hjálpar þér að vita hvar best er að vera.
Ástæða þess að þetta er hægt er nokkuð sem stjörnufræðingar kalla sólarhorn (e. solar declination), þ.e. staðsetning sólar norðan eða sunnan miðbaugs Jarðar.
Jörðin hallar miðað við sporbraut sína um sólina sem þýðir að hæð sólar á himni breytist yfir árið. Sól hækkar og lækkar, eins og allir hafa tekið eftir. Í ár er sól hæst á lofti, eða nyrst á himni, við sumarsólstöður sunnudaginn 21. júní.
Ferill sólar um himininn er næstum eins þá daga sem eru jafn langt fyrir eða eftir sólstöður. Þá:
30. apríl 2026 er nákvæmlega 52 dögum fyrir sólstöður á meðan 12. ágúst 2026 er nákvæmlega 52 dögum eftir sólstöður. Sólin er því svo til á sama stað á himni báða daga.


Þann 30. apríl gefst þeim sem ætla að upplifa almyrkvann á Íslandi því sjaldgæft tækifæri til að sjá hvar á himni sólin verður við almyrkvann.
Almyrkvinn 12. ágúst verður þegar sól er í um 24,5 gráðu hæð yfir sjóndeildarhring í vestri. Það er ekki ýkja hátt á himni svo landslag og byggingar gætu sumstaðar byrgt sýn. Því er gott að huga að heppilegum útsýnisstöðum fyrirfram.
Fyrir marga skiptir þetta litlu sem engu máli. Sólin verður hvort eð er nógu hátt á himni fyrir flesta. Þau sem eru að undirbúa viðburði ættu hins vegar að huga vel að útsýnisstöðum og nýta daginn til að kanna hvort útsýnið sé óheft til vesturs kl. 17:48.

Þau sem eru að skipuleggja viðburði, hvort sem er brúðkaup, hátíðir eða hvaðeina stóra daginn í ágúst er gullið tækifæri að nýta 30. apríl sem æfingu. Von er á tug þúsundum ferðamanna sem elta myrkvann til Íslands og eins gott að allt liggi ljóst fyrir.
Í Reykjavík, sem dæmi, verður fólk að njóta óhefts útsýnis til vesturs yfir Faxaflóann. Við strandlengjuna er útsýni jafnan gott en í sumum hverfum innan borgarinnar geta háar byggingar og nálæg holt falið fegurstu sýningu náttúrunnar.

Ljósmyndarar og ljósmyndaáhugafólk ætti sömuleiðis að líta á 30. apríl sem tækifæri til að finna góða tökustaði. Hægt er að nýta daginn til að huga að „rammanum“ og forgrunninum löngu fyrir almyrkvann. Þá eru dagarnir á undan líka kjörnir til að verða sér úti um öruggar sólarsíur.
Vilji einhver ramma myrkvann inn með Hallgrímskirkju eða Hörpu í Reykjavík í forgrunni, eða segjum Búðakirkju á Snæfellsnesi, er því tilvalið að beina myndavélinni í vesturátt kl. 17:48 30. apríl 2026.

Þann 12. ágúst 2026 liggur almyrkvaslóðin yfir Vestfirði, Snæfellsnes, Reykjanesskaga og Reykjavík. Almyrkvinn sést því best frá þessum stöðum en varir lengst vestast. Við almyrkvann hylur tunglið sólina alveg svo kóróna sólar (örþunna ytra andrúmsloft hennar) sést í örfáar mínútur.
Þann 30. apríl gerist þó annað nokkuð sjaldgæft: Æfing fyrir almyrkva. Dans himintunglanna veldur því að þá sést nákvæmlega hvar almyrkvinn 2026 verður á himninum yfir Íslandi, löngu áður en tunglið svífur raunverulega fyrir sólina.
Með kaupum á sólmyrkvagleraugum og öðrum varningi frá solmyrkvagleraugu.is styður þú við bakið á fræðsluverkefnum sem tengjast sólmyrkvanum.

Jamie Carter er fremsti sólmyrkvablaðamaður heims. Hann skrifar á WhenIsTheNextEclipse.com og skrifar um myrkva, stjörnuskoðunarferðamennsku og stjörnufræði fyrir Forbes.com, Space.com, New Scientist, Live Science, Sky & Telescope og BBC Sky At Night. Í ágúst 2026 verður hann fyrirlesari um borð í Sylvia Earle sem siglir frá Íslandi í leiðangri á vegum New Scientist.